»  off record  »  jagshemash
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
jagshemash
Sunnudagur, 01. október 2006

borat-430.jpgBorat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan er dásamlega óförskömmuð og pólitíkst rangtþenkjandi mynd og því eðlilega fáránlega fyndin. Bestu djókunum er beint gegn konum, Kazakstönum, gyðingum og misnotkun barna er höfð í flimtingum. Þetta er auðvitað til þess fallið að stuða fólk og Baron Cohen er ekkert að safna prikum hjá öllum og Borat sjálfur tekur undir fordæmingar landa sinna. Þeir sem láta þessa mynd fara í taugarnar á sér hljóta samt fyrst og fremst að þjást af húmorsleysi enda blasir það við þeim sem sjá vilja að myndin gengur fyrst og fremst út á það að gera grín að Bandaríkjamönnum og heimsku þeirra. Meðulin sem Cohen notar eru gróf en svínvirka og myndin er svo fyndin að maður bókstaflega ælir af hlátri á köflum.


| 22:57 |
komment

Áður fyrr lét ég húmorsleysi fólks og leiðinlega viðkvæmni fara í taugarnar á mér... reyndar hef ég ekkert hætt því. Aðallega hafa konurnar farið í taugarnar á mér í þessum efnum. Og svarti maðurinn.

Nr. 1 | Arnór | 2.10.2006 | 10:55:16 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff