Fimmtudagur, 19. október 2006
Guðmundur Steingrímsson, harmonikkuleikari og fyrrum vinnufélagi minn (heitir enn Gúndi blaðamaður í símanum mínum) er byrjaður að blogga. Löngu tímabært enda er Gummi skarpur í hugsun og húmoristi góður. Maður hlýtur samt auðvitað að setja þessa vakningu hans í samband við prófkjörsbröltið í honum enda lífga prófkjörinn hressilega upp á netið þessa dagana. Sé þetta tilfellið með Gumma er eitthvað jákvætt að koma út úr þessu og auðvitað viljum við öll fá strákinn á þing vegna þess að hann er drengur góður.
Hann er að vísu að bjóða sig fram í kolröngum flokki og er með þessu útspili að kljúfa félagsskap Skemmdra framsóknarbarna sem ég hélt að stefndi að yfirtöku þess arma flokks. Við Stjáni verðum þá bara að klára það dæmi tveir.
Gummi er alveg minn maður í pólitík og ég treysti honum til flestra verka eftir að við mynduðum Svarta gengið á Fbl. með Jakobi. Glory days. Sá frambjóðandi SF sem hefur gefið mér flesta Mojito á samt hug minn allan og hjarta en Gummi er alveg næst bestur.