Þriðjudagur, 10. október 2006
Þeim fjölgar svo ört hágæðabloggunum að það er aftur kominn tími á uppfærslu á tenglasafninu. Begga, sem oft er kennd ýmist við DV eða dýr og er minn helsti ráðgjafi í kvenna- og áfengismálum, er til dæmis byrjuð að rífa kjaft. Þarna liggja ákveðin samlegðaráhrif þar sem nú getum við fylgst hvort með öðru á bloggunum og þurfum aldrei að tala saman framar.
Af trúarlegum og siðferðislegum ástæðum reyni ég að halda fjölda fólks með framsóknarslykju yfir sér í algeru lágmarki í tenglunum en verð að gera undantekningar í tilfellum gæðabloggaranna Péturs Gunnarssonar og Denna. Mér er hins vegar öllu ljúfara og skyldara að vísa á sagnfróða gæðablóðið Guðmund Magnússon sem afplánaði refisivist með mér í Guantanamo í Skaftahlíð. Verst samt að Guðmundur virðist ekki hafa neitt annað að gera en skrafa við skýin þannig að síðan uppfærist svo ört að maður hefur ekki undan að lesa. Ég tengi svo vitaskuld alveg óttalaus á þessa bloggarakippu þar sem gjáin milli mín og þeirra er svo breið að ég verð aldrei vændur um að vera genginn í skjallbandalag staðföstu skóburstanna.
PÁÁ og Óli Gneisti hafa ekki verið inni lengi og þar er um yfirsjón af minni hálfu að ræða sem leiðréttist hér með. Þá þótti mér rétt að fjarlægja kílóaþyngd ÁBS af tenglinum hans þar sem hann er alltaf að léttast. Stríðsæsingamenn munu sjálfsagt telja þetta staðfestingu á því að við höfum fallist í faðma og þeir verða að eiga það við sig. Bloggstríðapæling Gambrans er samt góðra gjalda verð og persónulega finnst mér að fólk ætti að heyja sem flest bloggstríð. Ég er samt ekki góð fyrirmynd í þessum efnum þar sem mínar árásir einkennast allar af skítkasti og eineltistilburðum en það er þjóðráð fyrir sæmilega heilbrigt fólk að lyfta þessu á hærra plan. Fyrirmynd almennilegs bloggstríðs myndi sennilega heita ritdeila og hefur alltaf þótt frekar fínt fyrirbæri. Slíkt skak er líka aldrei skemmtilegra en þegar stílistar stúta óskrifandi aumingjum en það er vitaskuld offramboð á báðum tegundum á bloggvellinum. Make War. Not Love!
Talandi um deilur þá hlaut að koma að því að það skærist í odda með hinu mjög svo misgóða Orði á götunni og eins manns fréttastofu Denna enda ljóst að á báðum vígstöðvum skrifa menn sem vita af sér. Denni skýtur fast á menn orðsins í dag og hefur alveg efni á því að vera drjúgur eftir að hafa hirt forystuna svo hressilega í dauðafréttum af NFS að Orðið þagnaði þegar atgangurinn var sem mestur. Orðið svarar þó vonandi fyrir sig enda ljóst að bloggfréttastríð verður enn skemmtilegra en bloggstríð óbreyttra athyglissjúklinga. Liggur samt ekki beinast við að Orðsmenn verji bæklaðan fréttaflutning sinn í dæmum Svanssonar með því að benda á að allt hafi þetta verið rétt þegar það var birt og fréttir þeirra hafi einfaldlega breytt atburðarásinni og gangi sögunnar?
| 20:28 |