Föstudagur, 10. nóvember 2006

Hulli er enn á fleygiferð og verður orðinn heimsfrægur áður en yfir lýkur. JPV gefur út tvær myndasögubækur eftir hann í þessum mánuði. Eineygði kötturinn Kisi & hnakkarnir datt inn á borð til mín í gær og ný Okkur bók kemur eftir tvær vikur. Okkur skíturinn hans Hullboy er magnaður og fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina og hefur heillað ekki ómerkari menn en Eddie Izzard og Alan Moore. Alan Moore. How cool is that?
Kisi er öðruvísi, ekki jafn minimalískur, en húmorinn er sá sami og sagan um hnakkana er brilljant. Gamlar myndasögur úr Sirkus "áður en það varð hnakkablað" fylgja með nýju sögunni og ég fæ ekki betur séð en ég komi við sögu í einni þeirra en Kisi breytist greinilega í mig fullan þegar hann er útúrdópaður eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Held að við séum bara tveir Morrison og ég sem rekum upp þetta skerandi heróp, á engilsaxnesku að vísu, þegar við erum í góðum gír. Við Hulli höfum lent saman í nokkrum partíium í gegnum tíðina enda vorum við mágar þegar ég ég var upp á mitt allra versta og var fullkomlega andsetinn af Lizard King áður en hann var snúinn niður með geðdeyfðarlyfjum og síðar áfengismeðferð. Tengingin er augljós enda blossar kisinn upp í mér þegar ég næ að læsa klónum í ljósakrónur á tólfta glasi.
five to one beibí
| 19:38 |