»  off record  »  Algjör sveppur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Algjör sveppur
Föstudagur, 03. nóvember 2006

palli.jpgTalandi brúðan Páll Vilhjálmsson sagði eina ferðina enn skilið við heilbrigða skynsemi í grein í Morgunblaðinu á mánudaginn og varði hæpið erindi sem Guðbjörg Hildur Kolbeins flutti við og var ekki vísindalegra en svo að hún vísaði ítrekað í vænisýkisvaðalinn sem téður Páll hefur fengið birtan í Mogganum síðustu misseri.

Palli er samt alltaf fyndinn, það má hann eiga og þessi pönslína hans er helvíti góð: "Viðskiptaleg rök fyrir auglýsingum í DV voru engin enda voru Baugsauglýsingar innan um hamborgarasjoppur og súlustaði sem vitað er að borga lítið sem ekkert fyrir auglýsingar - og þá helst í fríðu."

Nú leiðist Páli ekkert að vega að æru fólks í skrifum sínum og þess vegna skil ég ekki hvers vegna hann upplýsir ekki hverjir hjá 365 eru að éta hamborgara og þiggja súludans hjá Geira gegn greiðslum í formi auglýsinga. Engan þekki ég auglýsingasalann eða blaðamanninn hjá DV sem hefur þegið slíkar trakteringar og eftir því sem ég kemst næst hefur Ásgeir Þór Davíðsson aldrei talið það eftir sér, eða séð eftir því, að greiða fyrir auglýsingar með beinhörðum peningum. Sagan er samt góð en verður ekki neitt meira fyrr en "blaðamaðurinn" varpar frekara ljósi á það hverjir séu að þiggja greiðslur í fríðu.

Annars gæti maður spurt sig hvernig stendur á því að Mogginn er með Ingimund Kjarval og Elías Davíðsson í banni en leyfir Páli að vaða uppi á síðum blaðsins. En maður veit auðvitað svarið.


| 23:53 |
komment

Quid pro quo. Hver borgaði fyrir James Bond ferðina? Hvað vilja þeir í staðinn?

Nr. 1 | VIP | 4.11.2006 | 12:56:43 | [+] |

Skemmtigildi hinnar sturluðu og nojuðu talandi dúkku er óvéfengjanlegt. Og gaman að velta fyrir sér ósamkvæmni Moggamanna í því samhengi -- að birta þetta eins og eitthvert vit sé í.

En eitt er að þiggja aðgang að einhverju fyrirbæri til að geta fjallað um það og hitt að segja blaðamenn og ritstjóra frá greitt fyrir auglýsingabirtingar í fríðindum á borð við hamborgara og súludans. Ég held að það hljóti að vera Geira á Goldfinger íhugnarefni hvort ekki sé rétt að sækja manninn til saka fyrir meiðyrði. En... sækir maður dúkkur til saka. Dúkkur sem eru með hina bláu hönd á bólakafi í rassgatinu á sér?

Varðandi mútur og mútur í blaðamannastéttinni. Menn geta svo sem farið um víðan völl í þeim efnum. Hvar er línan í því? Eru það mútur að íþróttafréttaritarar fái frítt á völlinn, leikhúskrítíkerar miða í leikhúsið, eiga gagnrýnendur að borga sjálfir fyrir bækurnar sem þeir fjalla um og þannig má lengi áfram telja. Meðan blaðamenn hokra við illan leik við hungurmörk á lágmarkslaunum held ég að siðapostular á borð við Jónas ættu að sitja aðeins eilítið lengur á stífum prinsippum sínum. Og berjast fyrir betri launum til handa stéttinni svo þeir geti með góðu móti boðað púrítisma í stéttinni. Eru til dæmis ekki dómarar sæmilega launaðir m.a. til að þeir séu ekki auðveld bráð þeirra sem vilja múta?

Blaðamenn eru hins vegar engir dómarar. Og meðan þessi er staðan, launin ömurleg, þá held ég að blaðamenn eigi einfaldlega að þiggja allt sem að þeim er rétt telji þeir það geta komið að gagni við að kynna sér málin. En að það liggi kristaltært fyrir að engar kvaðir eða skuldbindingar fylgi. Verði menn uppvísir af því -- til dæmis að láta eitthvað liggja á milli hluta eða skrifa sér þvert um hug í auglýsingaskyni... það má sjá slíkt í mílufjarlægð.

Kveðja,
Jakob

Nr. 2 | Jakob | 4.11.2006 | 13:35:33 | [+] |

Quid pro quo my ass nafnlausi whimp. Flott smjörklípa eða þannig. Hvað heldurðu að "þeir" vilji fá í staðinn? og hvað heldurðu að "þeir" fái? Endilega go crazy í þínum viltustu fantasíum and dream on.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 4.11.2006 | 14:05:34 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff