Er nauðsynlegt að hengja hann?
Sunnudagur, 05. nóvember 2006
Heldur verður heimurinn nú fátæklegri ef þeir ætla sér að hengja blessaðan kallinn hann Saddam. Breytir auðvitað engu en einhverjir munu öðlast fró og hugarró og aðrir sturlast. Þetta er alltaf eins og jafn pointless. Finnst samt lágmarkskurteisi að Hussein fái uppfyllta þá ósk sína að verða skotinn. Nógu andskoti niðurlægðu þeir hann mikið þegar þeir fundu hann þó þeir fari ekki að hengja hann eins og hvert annað kattarkvikindi.