»  off record  »  Glanspappírsskurður II
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Glanspappírsskurður II
Mánudagur, 06. nóvember 2006

annan.jpgEx-væfið er stunning í Séð&Heyrt (rétt að halda því til haga að hún hefur netta andstyggð á blöðum sem þessu og slefar ekki yfir fólki sem byggir tilveru sína á því að birtast á síðum þess en í þessu tilfelli gat hún varla skorast undan) en heldur þykir mér EIR vera farinn að færa sig upp á skaftið þegar hann heggur aftur í sama knérunn og veitist að manorði mínu aðra vikuna í röð. Eins gott að skrápurinn er orðinn harður ef þetta á að bætast ofan á allt hitt krappið.

Um daginn var ég settur fram sem smiling snapahead og lukkunnar pamfíll og nú sem gagnslaus eiginmaður og elskhugi. Fyrrverandi eiginkona mín lifir nefnilega "trylltu ástarlífi á netinu" gott ef ekki "ein með sjálfri sér". Það má því auðveldlega lesa það milli línanna að skarð mitt megi hæglega fylla með internetást. Mesta mildi að fyrirsögnin var ekki Skyldi við Tóta og lifir trylltu ástarlífi ein með sjálfri sér. Greinilega ekki mikill bógur sem hraktist úr hlýrri hjónasænginni í Vesturbænum.

Hef auðvitað líka mátt hlusta enn og aftur á endalausar ræður um fegurð minnar fyrrverandi og sígildar spurningar um af hverju ég hafi klúðrað þessu. Það þurfti nú alveg tvö til að slútta þessu þó þunglyndi alkinn geti vissulega tekið megnið af kreditinu. Nenni samt ekki að útskýra þetta fyrir Pétri og Páli en ver mig með því að við reyndum allt til að láta þetta ganga og lögðum ekki hjónabandið niður fyrr en í fulla hnefana. Læt það líka fljóta með að ég sé sérfræðingur í að missa frá mér fallegar, gáfaðar og frábærar konur. Nothing to be done.

Hin eiturskarpa Jóhanna Sigþórsdóttir, sem er einn af mínum uppáhaldsblaðamönnum og bestu vinnufélögum, hallaði sér glottandi að mér um daginn þegar við fórum yfir þetta og hvíslaði svo á sinn dásamlega kvikindislega hátt: "Og þú munt halda áfram að klúðra þeim þangað til þú dettur niður á þessa ljótu." Svo hló hún.

Vicious circle maður en það er samt ákveðin öryggistilfinning sem fylgir þeirri vissu um að maður muni enda einn. Þetta get ég auðvitað sagt þar sem ég hef notið meira branaláns en ég á skilið og kann þar fyrir utan vel við einveruna eftir að hafa verið nánast óslitið í föstum samböndum, hjónabandi eða sambúðum frá því ég var sextán.


| 21:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff