»  off record  »  Góða ferð til Parísar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Góða ferð til Parísar
Miðvikudagur, 22. nóvember 2006

treholt.jpgAðdáendaklúbbur Arne Treholt kom saman í gær. Þetta var hálfgerður stofnfundur félags sem telur aðeins tvo meðlimi og það er með mestu ólíkindum að við skulum fyrst núna hafa komist að því að á árum áður vorum við hvor í sínu horninu og fylgdumst af ákafa með örlögum þessa misskilda Norðmanns sem lagði sitt af mörkum til að slútta kalda stríðinu.

Samræður kvöldsins voru allar á háu andans stigi enda við félagar báðir jöfrar í þeim efnum. Við greindum lífið og tilveruna með aðstoð Jóhanns Sigurjónssonar og komumst að því að þetta er allt á leiðinni lóðbeint til helvítis. Bikarinn er helltur fullur af myrkri og það sem blasir við þeim sem þora að opna augun er tómur viðbjóður en eins og meistarinn segir nothing to be done...


| 9:18 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff