Mánudagur, 13. nóvember 2006
Talandi um Lizard King þá er hann nú ljóta pestin þessi James Morrison sem er með einhvern vælukjóadisk í gangi og tröllríður þessum ömurlegu íslensku útvarpsstöðvum. Gat þessi sauður ekki sýnt hinum eina sanna þá lágmarksvirðingu að skipta um nafn? Gæti alveg eins farið og migið beint á leiðið í París. Ætli það myndi ekki heyrast eitthvað ef einhverjir bjánr færu að hasla sér völl í Hollywood undir nöfnum eins og Steven McQueen, Christopher Farley og eitthvað í þá áttina?
Viðbjóðslegt að vita til þess að maður sem heiti James Morrison sé maður vikunnar á einhverju sem heitir LéttBylgjan. Þar fyrir utan rugla kynningar á þessu gimpi mann alveg og það kemur fyrir fimm sinnum á dag í bílnum að ég er kominn í Doors stellingar (LéttBylgjan samt aldrei í gangi) þegar þetta breim skellur á. Rennir stoðum undir það sem alvöru Morrison sagði í þessu sambandi:
Whoever controls the media, controls the mind
Hann sagði líka þetta um áfengisneyslu:
It's like gambling somehow. You go out for a night of drinking and you don't know where your going to end up the next day. It could work out good or it could be disastrous. It's like the throw of the dice.
No kiddin´
Þetta er líka ógalið og eiginlega bara alveg to the point:
Hatred is a very underestimated emotion
Ég er að reyna að vera jákvæður Gulli minn og skal fara hætta þessu enda varla annað hægt þegar það eru bara 32 dagar til jóla.
| 23:55 |