»  off record  »  Kötluflug
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kötluflug
Fimmtudagur, 02. nóvember 2006

Katla var bara yndi í Stokkhólmsferðinni. Ferlega kómískt og kúl barn. Við borðuðum kvöldmat saman á hótelinu á þriðjudag. Ég fékk spaghetti carbonara en hún ávaxtamauk sem virtist alveg toppa pastagumsið. Flugið heim tók hún með trompi eins og hún hefði ekki gert annað en fljúga. Var í banastuði og gerði meðal annars Mogganum viðeigandi skil. Engin vettlingatök þar. Hef ekki átt notalegri stundir með henni og var innst inni þakklátur fyrir mótvindinn sem dró flugið á langinn og framlengdi ánægjuna.


kat.jpg


kat2.jpg


| 22:14 |
komment

Ef þú birtir mikið af svona færslum þá fer öllum að líka vel við þig. Viltu það?

Nr. 1 | ábs | 3.11.2006 | 13:50:02 | [+] |

Góður punktur og fullkomlega valid ekki síst í ljósi þess að mér finnst fátt hallærislegra en að blogga um börn. Auðvitað get ég ekki hugsað mér grimmari örlög en að öllum fari að líka vel við mig. Því miður er því samt þannig farið að þegar maður er með þrjá akkilesarhæla þá verður manni stundum fótaskortur en ég reyni þó vitaskuld alltaf að halda jafnvægi.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 3.11.2006 | 22:57:33 | [+] |

alltaf gaman að sjá myndir af dóttur okkar á sjálfsmorðssíðunni þinni tóti.

Nr. 3 | Þóra | 4.11.2006 | 16:42:32 | [+] |

hehe alltaf við sama heygarðshornið, ay? Akkilesarhælarnir þínir eru allir yndislegir og mér sýnist sá nýjasti stefna hraðbyr í blaðamennskuna - eins og pabbi og mamma.

Hún er algjör dúlla þessi stelpa. Foreldrum sínum til sóma :-)

Nr. 4 | anna | 4.11.2006 | 22:26:01 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff