»  off record  »  Notalegt móment
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Notalegt móment
Laugardagur, 25. nóvember 2006

Illa sofinn en samt nývaknaður settist ég upp í bílinn á fimmtudagsmorgun. Kveikti í fyrstu sígarettu dagsins áður en ég startaði bílnum. Útvarpið hrökk í gang og í því var Chris Rea nýbyrjaður að syngja Road to Hell. Bakkaði út úr stæðinu og keyrði í vinnuna og fannst einhvern veginn eins og Chris vissi að ég væri að fara í Skaftahlíð. En kannski var hann bara að meina þetta svona almennt.


| 21:21 |
komment

Tóti minn, er þetta svona agalegt? Geturðu ekki notið alls endorfínsins og dómamínsins og adrenalínsins sem sprautast út í líkamann og um æðar þér dag hvern um þeitta leyti í Skaftahlíðinni?
Nú svo hlýtur þú nú að hafa fengið gott kikk á föstudagskvöldið á uppáhalds skemmtistaðnum þinum. Vertu glaður eins og ég, eða ertu slæmur í löppunum?

Nr. 1 | Forvitna Begga | 26.11.2006 | 9:42:24 | [+] |

Hægra hnéð er alveg að gera út af við mig en ég held samt að ástæðurnar fyrir því að ég fæ ekki kikk út úr neinu lengur liggi annars staðar. Ég á engan uppáhalds skemmtistað lengur þetta er allt jafn leiðinlegt.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 26.11.2006 | 23:52:36 | [+] |

Er þetta svona Groundhogday í helvíti á Fréttablaðinu?

Nr. 3 | Kópavogsbúinn | 27.11.2006 | 10:58:12 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff