»  off record  »  Rökþrot
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Rökþrot
Sunnudagur, 12. nóvember 2006

That nothing is worth dying for. And the real trouble is, Father, that nothing´s worth living for either.

Mér hefur oft fundist Fallon hitta naglann á höfuðið þegar hann segir þetta við prestinn í A Prayer for the Dying en öll heimspeki IRA morðingjans í þessari gulnuðu kilju hefur fallið ágætlega að tómhyggju minni. Varð því fyrir umtalsverðu áfalli þegar ég var rekinn á gat eftir tveggja tíma debatt í húsi einhvers staðar í miðbæ Reykjavíkur klukkan rúmlega átta á laugardagsmorgun.

Eitthvert slip of the tounge leiddi í ljós að mér finnst mikilvægara að berjast fyrir einhverju en gegn einhverju eða eitthvað í þá áttina þannig að niðurstaðan varð sú, og ég kyngdi henni með óbragði og smá rauðvíni, að ég væri hugsjónamaður. Var löngu búinn að selja mér það að allt slíkt krapp hefði elst af mér en ég með mitt ókláraða BA próf í bókmenntafræðum lét mann með gráður í heimspeki og sögu blotta mig og gangast við því að ég væri hugsjónamaður án þess þó að hafa hugmynd um hverjar hugsjónirnar eru.

No big deal samt þar sem ég man ekki lengur um hvað þetta snerist og get því sofið rólegur í þeirri fullvissu að þegar ég vakna á viðbjóðslegum mánudagsmorgni í nóvember verða allar hugsjónir foknar út í veður og vind þar sem þær eiga heima.


| 23:14 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff