Sunnudagur, 05. nóvember 2006
Þeim fer stöðugt fjölgandi fórnarlömbunum sem er vísað í af þessari skelfilegu síðu. Það verður þó að segjast eins og er að nokkuð er um að suðað sé í mér um að fá tengla hérna enda hefur slíkt löngum aukið umferð um low profile vefi. Flokkuð tenglasöfn fara oftast í taugarnar á mér en þessi runa er orðin það löng að ég neyðist til að slíta hana í sundur. Það er engin sérstök hírarkía í þessu fyrir utan það að dæturnar tróna auðvitað á toppnum og Anna, Hrafn, Jónas, Össur, Egill og Björn eru í efsta lagi enda elíta. Hrafn er nýbyrjaður að blogga og þar sem Hrafn er Hrafn hika ég ekki við að setja hann í flokk með hinum sem eru hvert á sinn hátt í ákveðnum sérflokki þó vart sé hægt að hugsa sér ólíkari blogg en til dæmis hjá Önnu og Birni.
Í næstu púllíu eru bloggarar sem hafa einhverjar tengingar við Fréttablaðið, mismiklar að vísu, en þarna eru full time blaðamenn, bakþankahöfundar og einn fyrrverandi blaðamaður en ég lít enn á Beggu sem vinnufélaga þó hún hvíli í faðmi Mikka á Birtingi. Sjálfsagt er til mökkur af Fréttablaðsbloggum sem komast ekki að þarna en þá veit ég annað hvort ekki af þeim eða hef engan áhuga á því að lesa þau. Svarti DV sauðurinn Símon Birgisson og týndi DV sonurinn Valur Grettisson eru þarna líka og forsendan hlýtur að vera augljós Skaftahlíðartenging.
Á eftir fréttó liðinu koma svo leyfarnar af eldgamla skjallbandalaginu: Ingó, pönkarinn, Totil og fleiri ásamt Ármanni og Kaninkubloggurunum sem eru orðnir býsna rosknir í blogginu en enn miklu ferskari en margur nýliðinn. Þá eru þarna einhverjir kunningjar, vinir og fjandvinir sem ég hef lesið reglulega til lengri eða skemmri tíma og nýjasta viðbótin er hin magnaða Mireya sem er nýbyrjuð að blogga og gefur kost á sér í prófkjöri VG. Frábær manneskja rétt eins og Guðfríður Lilja sem gefur kost á sér í prófkjöri hjá sama flokki. Sýnist VG alveg ætla að buffa aðra flokka í framboði á almennilegum konum.
Lestina reka svo skúbbarar, besserwissar og orðhákar sem allir hafa einhverjar fjölmiðlatengingar. Les þá þó ekkert sjaldnar eða af minni áhuga, þvert á móti.
| 17:06 |