Sunnudagur, 05. nóvember 2006
Remember, remember, the Fifth of November,
The Gunpowder Treason and Plot...
I know of no reason
Why the Gunpowder Treason should ever be forgot...
Dagsetningin gaf gott tilefni til að halda áfram með uppeldi uppreisnarunglingsins. Horfðum á V for Vendetta og frumburðurinn var í framhaldinu sendur í háttinn með samnefnda bók eftir Alan Moore eftir smá fyrirlestur um þá frumskyldu hverrar manneskju að efast um allt yfirvald, standa á sínu og hafna hjarðeðlinu. Nónu fannst samt full langt gengið þegar V sprengdi Westminster Abbey enda ber hún virðingu fyrir London og gömlum byggingum en stundum verður ekki hjá því komist að sprengja hús, stíflur og annað sem er orðið að tákni kúgunnar og heimsku.
The building is a symbol, as is the act of destroying it. Symbols are given power by people. Alone, a symbol is meaningless, but with enough people, blowing up a building can change the world.
Feðginin fengu gæsahúð þegar fjöldinn óð gegn vopnaðri lögreglu í Guy Fawkes búningum, urðu djúpt snortin af þessum línum:
Beneath this mask there is more than flesh. Beneath this mask there is an idea, Mr. Creedy, and ideas are bulletproof og táruðust (næstum) þegar Evey slúttaði myndinni: He was Edmond Dantés... and he was my father. And my mother... my brother... my friend. He was you... and me. He was all of us.
| 22:42 |