Laugardagur, 25. nóvember 2006
Frestur til að skrá sig í VG fyrir prófkjörið í Reykjavík og Kraganum um næstu helgi rann út í dag. Ég þurfti þó ekki að hafa miklar áhyggjur af því þar sem ég var skráður í flokkinn að mér forspurðum á meðan ég var á Vogi í fyrra. Einhverra hluta vegna er ég einnig skráður í Samfylkinguna en það er magnað að ég skuli vera í tveimur flokkum þar sem ég kæri mig alls ekki um að tilheyra hópum og þá allra síst stjórnmálaflokkum. Eina félagið sem ég er í með góðri samvisku er Ásatrúarfélagið. BÍ neyðist ég til að vera í (sem er svo sem ok þar sem það endurgreiðir mér sálfræðikostnaðinn) og verð endilega að reyna að muna að skrá mig úr þessum tveimur pólitísku partíum.
Ætla samt að notfæra mér það að vera í VG á laugardaginn og kjósa í prófkjörinu enda efast ég um að nokkur flokkur sé með jafn mikið úrval af frambærilegu alvöru fólki og VG. Þarna á blaði eru til dæmis margar konur sem hreinlega verða að komast á þing þannig að þeir sem vilja hlut kvenna sem mestan í pólitík ættu að hlunkast til þess að kjósa Katrínu Jakobsdóttur, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Guðfríði Lilju og Mireyu í örugg sæti. Það er nefnilega frekar algengt í sumum flokkum að þær konur sem potast áfram þar hafi beinlínis karlgert sig til þess að komast áleiðis en þessar eru heilar í gegn.
Svo kýs maður auðvitað Ögmund. Mér nægir auðvitað það eitt að afa var alltaf hlýtt til hans en þar fyrir utan er hann hugsjónamaður með hjartað á réttum stað og berst eins og öskrandi ljón fyrir útópíunni sem hann trúir á. Sannur mannvinur sem missir sig stundum í tilfinningaseminni en ef hann gerði það ekki væri hann ekki alvöru.
| 23:53 |