»  off record  »  Winner takes all
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Winner takes all
Þriðjudagur, 07. nóvember 2006

Það er engu logið með Casino Royale. Þetta er þönderstöff og sennilega besta Bond mynd síðan eiginlega bara frá upphafi. Það hefur í það minnsta enginn leikari kynnt sig sem Bond, James Bond með jafn miklu öryggi og töffaraskap síðan Connery sagði þetta fyrst í Dr. No.

Craig fer þetta á úberkúlinu og gerir Bond aftur að alvöru gaur og tekur Jack Bauer og Jason Bourne og pakkar þeim saman. Bond er aftur orðinn aðal og eftir nokkur mögur ár er 007 sjálfum sér (Connery) líkur og Bretar eiga aftur svalasta leyniþjónustumanninn.


Solange: Why can´t the nice guys be more like you?
Bond: Because... then they´d be bad.

Bondarinn er frábær í þessari badass mynd og mesta bjútíið er að hún er ótrúlega trú fyrstu og sadískustu skáldsögu Ian Flemming. Þremur lykilatriðum er haldið vandlega til haga en fyrirfram gerði ég mér engar vonir um að jafn mikið yrði sótt í frumtextann. Fyrir þá sem þekkja til eru þetta setulausi stóllinn (teppabankaranum hefur að vísu verið skipt út), dauði Le Chiffre og síðast en ekki síst "tíkin er dauð".

Þessi mynd er schnilld.

Var samt ekki að fíla titillagið og með réttu hefði átt að endurvinna Thunderball en í þeim texta er nýja Bondinum vel lýst:

He always runs while others walk
He acts while other men just talk.
He looks at this world, and wants it all,
So he strikes, like thunderball.
He knows the meaning of success.
His needs are more, so he gives less.
They call him the winner who takes all.
And he strikes, like thunderball.

Any woman he wants, hell get.
He will break any heart without regret.
His days of asking are all gone.
His fight goes on and on and on.
But he thinks that the fight is worth it all.
So he strikes like thunderball


| 23:45 |
komment

En er ekki miklu meira kúl að ganga á meðan aðrir hlaupa?
Nei ég bara spyr eins og fávís - eitthvað.

Nr. 1 | tumi | 8.11.2006 | 3:15:36 | [+] |

Það virðist nú vera þitt helsta hlutskipti í lífinu að spyrja eins og fávís eitthvað.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 8.11.2006 | 12:22:49 | [+] |

Ertu frá þér? Pakkar Jack Bauer saman? hahahaha

Hlægilegt...

Nr. 3 | Gunnar | 14.11.2006 | 4:34:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff