Þessi endi upp
Föstudagur, 29. desember 2006
Hið rausnarlega fjölmiðlaveldi 365 gaf hverjum og einum starfsmanni myndarlega rakettu í dag. Afþakkaði mína þar sem ég missti áhugann á fírverki um svipað leyti og ég varð kynþroska. Á flugeldana var prentað ÞETTA ER FLUGELDUR. Kaus að túlka þetta ekki sem viðbragð við almennu greindarstigi starfsfólksins en get ekki slegið loku fyrir það að þessu hafi veril klístrað á skoteldana með markaðs- og auglýsingafólk í huga.