Þriðjudagur, 12. desember 2006
Lenti á ansi mögnuðu bæjarrölti fyrir hálfum mánuði eða svo eftir árlegt Eddupartí á Suðurlandsbrautinni. Hef ekki nennt að gera frekari grein fyrir því þó eyðimerkurganga hópsins sem taldi meðal annars þrjá rithöfunda í sérflokkum hafi verið kúnstug og vel í frásögur færandi. Gamall og góður kunningi og vopnabróðir frá gömlu Vísisárunum, Tóti del Toro, hefur tekið af mér ómakið og gerir þessu snaggaraleg skil þó hann hefði að ósekju mátt dvelja lengur við alla þá fínu veitingastaði sem vildu ekki dekka borð fyrir elítuna.
Eftir Partíið vidli harðasti kjarninn fara út að borða. Það voru teknir bílar niður í miðbæ og síðan hófst einhver mesta píslarganga sem ég hef lent í. Okkur var meinaður aðgangur alls staðar og Batabing var meira að segja gert að slökkva í sígarettu á einhverjum undarlegum stað sem heitir HOMO á meðan eigendur þessa sama staðar stóðu eins og dauðadæmdir menn upp við barinn og einhver - ég veit ekki hvort það var ég - æpti að þessi staður væri sko búinn að vera. Hann myndi ekki lifa vikuna af. Við skildum sjá til þess.
Og svo strunsaði elítan út með látum.
Man ekki heldur hver það var sem hótaði að gera út af við staðinn en flest bendir til þess að það hafi verið annar hvor Tótinn. Fundum svo athvarf í Kjallaranum þar sem mér þótti öllu meiri fengur í áfenginu en matnum enda vorum við Tótarnir löngu farnir að væla um það að best væri að sleppa mat og fara beint á bar. Tókum samt heils hugar undir tillögu alþýðlega rithöfundarins sem stakk við litlar undirtektir upp á Grillhúsi Guðmundar.
Annars er þessi víraða nótt öll hulin þoku en samkvæmt tveimur til þremur heimildum úr ólíkum áttum á ég að hafa haldið því fram að tiltekinn metsöluhöfundur gæti ekki skrifað. Það var illa sagt og innistæðulaust en um leið dæmigert fyrir undirritaðan ekki síst þegar maður er "æði villimannslegur á köflum". Fjandinn einn veit hvað fleira gerðist í framhaldinu en ég rétt missti af slagsmálum á Ölstofunni. Veit ekki hvort það var heppni eða óheppni enda ræðst sú niðurstaða auðvitað af áverkunum sem maður hlýtur og veitir.
| 17:57 |