»  off record  »  Kill Phil
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kill Phil
Þriðjudagur, 12. desember 2006

vito.jpgHeldur fékk hún dapurlegan endi þessi fallega hommaástarsaga sem er búin að halda manni hugföngnum yfir Sópranós undanfarið. Aumingja Vito átti það nú ekki skilið að vera barinn til dauða, Casino style, af undirsátum New York gangstersins Phil. Hann var duglegur og traustur kafteinn (og alltaf í voða sætum peysum) í liði okkar manns og þó hann hafi verið snarfeigur eftir að hann sást í leðurdressinu vonaði maður innst inni að hann fengi að hafa það gott sem lengst í griðlandinu með slökkviliðsmanninum sínum.

Phil er náttúrlega með öllu óþolandi og Tony ætti að vera löngu búinn að snúa hann niður á hornunum. Maður getur svo sem gælt við þá von að meðferðin á Vito kalli á viðbrögð sem enda með stríði en T er bara orðinn of soft eftir dauðadáið. Væri samt smart ef hómóerótíkinni væri öðrum þræði ætlað að leysa spennuna milli York og Jersey úr læðingi með tilheyrandi fjöldamorðum.

Silvio missti sig aðeins um daginn og nú þurfa bara Paulie og Christopher að snappa líka og allt verður brjálað og þessi fukkans Phil verður drepinn.


| 22:08 |
komment

Heyr! Blóðbað og helvíti!

Nr. 1 | Magnús | 13.12.2006 | 0:19:11 | [+] |

Ekki spurning. Allir á dýnurnar!

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 13.12.2006 | 12:11:53 | [+] |

Er nýbúinn að klára seríuna, og verð að hallast að því að fimmta serían hafi verið betri.

Nr. 3 | Vignir | 29.12.2006 | 8:22:06 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff