Loosers always whine..
Þriðjudagur, 05. desember 2006
... about their best. Winners go home and fuck the prom queen.
Uppsöfnuð dekkun á lestri Fréttablaðsins yfir vikuna í aldurshópnum 20-29 ára er samkvæmt þessu 98,9%. Það segir sig sjálft að þetta er fólk sem byrjar réttu megin á blaðinu. Það er að segja les það aftan frá. Við Jakob höfum alltaf haldið því fram að það sé innblaðsefnið sem meikar eða breikar blöð. Fréttadeildir eru alltaf á svipuðu róli á meðan það reynir á hugmyndaauðgi og stílgáfu í aftari hlutum blaða.
Rýrnun Moggans hefur löngum stutt þessa kenningu enda er ekkert innblað í Mogganum heldur einhver samhengislaus grautur efnis og þegar eitthvað gott dúkkar upp er það kæft með viðbjóði allt í kring. Blaðið Blaðið er hressara en er í órafjarlægð frá því að bjóða upp á innblað sem stendur undir nafni. Það mun ekki breytast á meðan boðið er upp á burðargreinar á borð við "starfið mitt", "maturinn minn", "líkamsræktin mín" og eitthvað álíka. Dæmigerða eindálka sem standa fyrir sínu sem slíkir en hverjum er ekki fokk sama hvað öll þessi íslensku smástyrni éta eða gerðu á unglingsárunum.
Mest lesna dagblað landsins er eina dagblaðið sem býður upp á alvöru innblað. Tölurnar tala sínu máli og markhópurinn er dýrmætur.
I rest my case
| 19:16 |