Miðvikudagur, 06. desember 2006
Fékk SMS frá blaðamanni áðan sem stefndi mér á einhvern sterílan stað sem heitir Domo eða eitthvað í þá áttina. Villtist þar inn með mögnuðu föruneyti á föstudaginn og það var gerð athugasemd við sígarettuna mína. Furðulegt. Anyhu. Fékk svo annað SMS svohljóðandi:
Ef eg skyldi verda rafmagnslaus tha hringja i XXXX
Svaraði: Bladamadur med rafmagnslausan gemsa, komon! Eastwood med toma sexhleypu
Við erum ekkert án símans og ég sef alltaf með minn fullhlaðinn undir koddanum og svara öllum (nema þeim sem ég nenni ekki að tala við. Svara eiginlega aldrei come to think of it). Skil samt ekki blaðamenn sem neita að gefa upp símanúmerið sitt. Stöku morðhótanir (þær eru sjaldnast tengdar vinnunni hvort eð er) eða diss gefa þesu bara gildi og þær eru ófáar fréttirnar sem koma frá geðsjúklingum sem maður þekkir ekki neitt.