»  off record  »  Celebration of the Lizard
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Celebration of the Lizard
Laugardagur, 09. desember 2006

morris.jpgÍ gær hefði James Douglas Morrison orðið 63 ára hefði hann ekki tekið upp á því að drepast í baði árið 1971. Óheppilegt samt að það skyldi hittast þannig á að Alþjóðlega væmnidaginn bar upp á þessum degi í ár enda ekkert pláss fyrir væmni þegar haldið er upp á afmæli Morrisons. Öll rómantík tengd honum sækir kraft sinn í sturlun, andaheima og dauða.

Díógenes var því eðlilega blótaður fram undir morgun með fullkomnum djöfulgangi þó Bakkynjurnar hafi látið lítið fyrir sér fara. Allar dyr voru opnaðar og sumum skellt þannig að þeim verður ekki upp lokið aftur en svona lætur maður hvort eð er ekki nema í mesta lagi einu sinni á ári. Aðalatriðið samt er að minningu Jimbo var sýndur fullur sómi.


there’s the known, and there’s the unknown, and what separates the two is the door, and that’s what I want to be.


| 14:15 |
komment

Heyr heyr!

Nr. 1 | valur | 11.12.2006 | 11:49:27 | [+] |

Daginn áður hélt ég upp á afmæli langtum merkari mannveru en þessa þykjustuskálds og tilgerðarplebba, en sjálfur Tom Waits fæddist 57 árum áður.

Það gerði ég ekki með flottari hætti en þeim að hlusta á ekkert nema karlinn og reykja sígarettur í kuldanum og nóttinni. Hefði dottið í það ef ég hefði annað hvort verið með götts eða ekki í prófum.

p.s. Móðganir á Jim Morrison skal ekki taka ýkja alvarlega, þar sem ég meina í rauninni ekkert með þeim, annað en það að í samanburði við meistara Waits taka þessar móðganir algjört gildi og í raun léttvægi.

Nr. 2 | Arnór | 11.12.2006 | 13:50:44 | [+] |

Morrison var skíthæll af guðs náð og á inni fyrir allri þeirri drullu sem fólk kærir sig um að ausa yfir hann. Breytir því þó ekki að Tom Waits er nöldurgjarn smáborgari sem felur sig bak við rónalúkk, góða texta og flotta rödd. Hann er kúnninn á bensínstöðinni sem þig langar að senda 21" skrúfjárn í gegnum hausinn á.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 12.12.2006 | 22:01:58 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff