»  off record  »  Ræflatestamentið
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ræflatestamentið
Föstudagur, 15. desember 2006

Ísak Harðarson er hörkuljóðskáld og þó ég fíli alltaf ljóðin sem hann orti áður en hann sá ljósið betur en þau nýrri þá er hann enn uppáhalds. Hafði Ræflatestamenntið, rétt eins og The Big Sleep, innan seilingar í gegnum allan menntó en veit ekki hvað varð til þess að ég var allt í einu komin í hendurnar á mér í nótt. Las nokkur gömul og góð ljóð sem minntu mig á hvers vegna ég reyni alltaf að hlaupa frá ljósinu. Hefur maður þroskast? Ó, nei.

Ljóð handa ræflum
(Í heimi vélmennanna)

Ég ætla að vera alkohólisti.
Ég ætla að vera ábyrgðarlaus.
Ég ætla að vera geðveikur.

Það er eina leiðin
til að halda sjálfsvirðingunni
Eina leiðin
til að halda lífslönguninni
Leiðin
til að vera maður sjálfur

Til að vera.


| 0:21 |
komment

Dj....varstu fullur um daginn. Heppinn að Dóri buffaði þig ekki.

Nr. 1 | Mr Bacardi | 15.12.2006 | 10:25:06 | [+] |

iss, þetta var ekki neitt, rétt snertur af blakkáti þannig að ég efast nú um að þú sért hinn eini sanni Mr Bacardi og það er ljótt að skreyta sig með stolnum fjöðrum, að maður tali nú ekki um leðurblökuvængjum.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 15.12.2006 | 16:38:04 | [+] |

Kæri badabing.
Má ekki bjóða þér í heimsókn á http://blogdog.blog.is/blog/blogdog/ í smá jólaglöggvun á fréttum dagsins.
Með bestu kveðju,
blogdog

Nr. 3 | blogdog | 21.12.2006 | 9:45:00 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff