»  off record  »  Silence is golden
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Silence is golden
Föstudagur, 29. desember 2006

Eitthvað hefur verið þusað í mér fyrir langa þögn hérna. Karen gengur svo langt að halda því fram að BadaBing! sé orðin jafn leiðinleg og samverustund með ágætis manni sem ég kýs að nefna ekki hér og Begga fárast yfir því að hún viti ekki hvað ég sé að gera og hugsa þegar hún fær ekki updeits hér. Ágæt vinkona mín svosem en greinilega of góð með sig til að taka upp símann.

Ég tók útnefningu Time á bloggurum sem fólki ársins ekki til mín og er fyrst og fremst að þessu fyrir sjálfan mig en ekki til að breyta heiminum (held maður þurfi örugglega að vera veruleikafirrtur framsóknarmaður til þess að trúa því að bloggarar séu að móta söguna) og tek mér því hiklaust langar pásur þegar lífið verður þess virði að lifa því þannig að netrúnk verður jafnvel fánýtara en ella. Þar fyrir utan gæti mér ekki verið meira sama um aðsókn á síðuna og hef ekki skoðað teljaratölur í tvö ár og eftirlæt smáborgaralegum Moggabloggurunum það eftir að slefa yfir hitsunum sínum. Álíka spennandi og búa í tröllvöxnu fjölbýlishúsi og telja hversu margir snerta hurðarhúninn hjá manni.

Bransinn er meira og minna allur að ganga um hinar fögru dyr og glanspappírinn safnast allur undir hatt Reynis. Held ég láti mér nægja að ganga harkalega um gleðinnar dyr enda full ástæða til þess að fagna því að viðbjóðslegt ár er að baki. Gut instinctið segir mér hins vegar að það næsta verði óslitinn sigurganga hjá mér og nánustu bandamönnum mínum. 2007 verður í það minnsta árið sem þjóðin sker framsóknarkrabbameinið úr líkama sínum.


| 18:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff