»  off record  »  Ágúst Magnússon í Byrginu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ágúst Magnússon í Byrginu
Þriðjudagur, 30. janúar 2007

Fyrir bloggara sem þrá traffík og athygli og fylgjast spenntir með teljaranum á síðum sínum frá morgni til kvölds er Moggabloggið sannkölluð himnasending. Breytir vitaskuld engu um það að þeir eru teljandi á fingrum beggja handa (að viðbættum nokkrum tám til eða frá) þeir sem þar blogga og er þess virði að lesa að staðaldri.

Fyrir þá sem vilja halda ídentíteti og blogga annars staðar eða á eigin vegum er í þessari fyrirsögn fólgið gamalt húsráð sem hefur löngum reynst bloggurum vel. Málið er einfaldlega að setja nöfn sem eru heit í umræðunni í fyrirsögn og drita svo þeim og öðrum álíka kerfisbundið í færslutextann. Leitarvélarnar, forvitni og ekki síst anal áhugi sörfera á öllu sem er ógeðslegt og hneykslanlegt sér svo um afganginn.

Hér verður því fjallað um Ágúst Magnússon, afhommanir, klám, Íslensku bókmenntaverðlaunin, Guðmund í Byrginu, grímuklæddan mann sem kallar sig Iron Master, HM í handbolta, barnaníðinga, Kompás, Hvítasunnusöfnuðinn og alls konar skríl, klámsýningu á Pravda, fræga hnakka, Rockstar, greiðslustöðvun íslenska bachelorsins, rassinn á vinkonu hans, ótrúlega lesningu um kynlífsmyndband, dularfullan líkfund á Granda, nafngreinda barnaperra, Tommy Lee í Bláa lóninu, dauðarefsingar, fasista, Frjálslynda flokkinn, stjórnarslit og síðast en ekki síst ákvörðun Davíðs Oddssonar um að taka evruna upp á morgun. Já, og auðvitað Marilyn Monre.

Ef ég hefði teljara ætti hann heldur betur eftir að tikka en það má svo endalaust deila um hvort innlitin hafi verið einhvers virði fyrir þá sem bitu á agnið.


| 22:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff