Þriðjudagur, 16. janúar 2007
Þetta er sennilega ekki alveg að virka hjá De Palma þar sem noir heimurinn er líf mitt og yfirleitt þarf ekki meira en keðjureykjandi karlmenn með hatta og hættulegar konur í flegnum kjólum sem aldrei segja satt til þess að heilla mig. Missti samt hvorki saur né sæði af hrifningu yfir þessu hjá kallinum. En hann sýnir samt snilldartakta inn á milli en miðað við efniviðinn hefði þetta átt að vera miklu betra. Ellroy er vissulega verðugur arftaki Chandlers og Hammets og hér eru öll eliment til staðar. Þessi mynd er noir en samt ekki alveg. Vantar tilfinningarnar. Samt alveg bergmál af The Big Sleep. Söguhetjan með hattinn útdeilir sínu eigin réttlæti sem hefur ekkert með lög og reglu að gera, konurnar eru lesbískar og í meira lagi skæðar og ríka pakkið er svo spillt, dekadent og fyrirlitlegt að það gæti átt sér stað í raunveruleikanum og á allt illt skilið.
Hartnett er skemmtileg blanda A og B týpunnar í noir fræðunum. Stenst tálar kvennanna næstum því en ekki alveg og er hálfgerður sap. Eitthvað sem Bogie var aldrei enda lék hann ekki í myndum byggðum á sögum James M. Cain. Heimurinn er hins vegar ekki jafn svart/hvítur í dag og það veit Ellroy upp á sína tíu og blandar þessu vel saman.
Hilary Swank á bestu línu myndarinnar: I think you'd rather fuck me than kill me. But you don't have the guts to do either.
Svona tala bara alvöru femme fatale en svo veltur það bara á karlinum hvort þær komast upp með það. Passar hattur Sam Spade á Hartnett? Farið í bíó til að komast að því en það er sársaukalaust að upplýsa hvernig James Bond brást við í svipaðri stöðu.
Elektra King (Sophie Marceau) og Bond (Pierce Brosnan) eru feis tú feis. Framtíð heimsbyggðarinnar eru undir og Bond miðar byssu á hana.
Elektra King: You wouldn't kill me. You'd miss me.
Bond, ískaldur að vanda skýtur hana í hjartað: I never miss.
The World Is Not Enough er samt ekki noir mynd en þetta er bergmál af Möltufálkanum og I hope they don't hang you, precious, by that sweet neck. Yes, angel, I'm gonna send you over. The chances are you'll get off with life. That means if you're a good girl, you'll be out in 20 years. I'll be waiting for you. If they hang you, I'll always remember you.
Þetta gott fólk er rómantík á hæsta stigi. Sé það ekki á hreinu ætla ég ekki að stafa það ofan í ykkur. En er Hartnett Bogart? Sem leikari á hann ekki séns en Ellroy og De Palma gætu bjargað honum fyrir horn, eða hvað?
| 1:07 |