»  off record  »  Flassbakk
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Flassbakk
Þriðjudagur, 02. janúar 2007

Það sjá það allir sem vilja að það er margt og mikið að í Efstaleitinu en einhvern veginn átti maður samt ekki von á að RÚV tæki upp á því að sýna Myrkrahöfðingjann aftur en sjálfsagt skilar þessi firring einhverjum aurum í vasa flokksgæðings. Fór yfir þetta síðast þegar RÚV gladdi skylduáskrifendur með fokdýru stórvirki Hrafnsins og get ekki orðað það betur nú.

Það segir svo auðvitað allt sem þarf að segja um frammistöðu leikara í myndinni að Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæisflokksins, bar höfuð og herðar yfir alla aðra. Látbragð og andlitsdrættir þessa valdamesta manns landsins var rétt eins og maður getur ímyndað sér Brynjúlf biskup hefði hann komist í klámmyndabók, innblásinni af vítisljóðum Dantes og myndskreyttri af norska perranum Odd Nerdrum.


| 17:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff