Þriðjudagur, 30. janúar 2007
Árshátíð 365 var helvíti skemmtileg þvert á væntingar mínar og spár en reynslan hefur kennt mér að fjöldasamkomur á vegum þessa fyrirtækis séu álíka intressant og að láta sér blæða út í langdregnu sjálfsmorði. Kannski ekki beinlínis við öðru að búast hjá fyrirtæki sem heldur úti stórri markaðs- og auglýsingadeild.
Á móti kemur að þarna er einnig vænn slatti af blaðamönnum, sem flestir kunna að drekka, og eins og ég veit best af löngum samvistum við sjálfan mig er fátt skemmtilegra en fullur blaðamaður. Þar fyrir utan var þarna töluvert af alvöru fólki, gömlum kunningjum sem ég hef ekki hitt lengi að ógleymdum Senugaurunum og vopnabræðrunum tveimur frá Cannes sem passa vandlega upp á að mohito skorti aldrei.
Þá hefur aldrei spillt fyrir að vera með þennan undanvilling í kallfæri. Þessi Miami Vice klefi sem hann talar um fór alveg fram hjá mér, rétt eins og skemmtiatriðin. Ekki skrifast það þó á ofurölvun heldur reykingafasismann sem varð til þess að ég eyddi mestum tíma í reykherberginu við innganginn. Það var hið besta partí og ég get ekki sagt að ég finni fyrir tómleika þó ég hafi misst af Bó, Agli Ólafssyni og Lay Low (sem mér skylst að einhver frasakóngurinn segi að sé Mugison með píku).
Þurfti líka að vera mikið á þönum enda þýðir ekkert að standa kyrr ef maður ætlar að móðga sem flesta á sem stystum tíma. Þessu komumst við Óli að fyrir mörgum árum á árshátíð ESSO í Perlunni. Þar gátum við samt setið kyrrir allt kvöldið en náðum að blammera flesta þar sem borðið okkar hringsnerist um fórnarlömbin, sem var yfirleitt rétt runnin reiðin þegar hringferðin kláraðist og það var hægt að senda þeim næstu gusu. Eini Plúsinn við Perluna.
Hápunktar 365 árshátíðarinnar voru tveir en sitt í hvoru lagi sáu tveir spaðar ástæðu til þess ýmist að kalla mig illmenni eða vara sérstaklega við mér sem slíkum. Þetta gladdi mig ósegjanlega enda skilst mér á Corleone jr. sem veit sitthvað um markaðssetningu að svona reputation og útbreiðsla þess verði ekki metin til fjár. Örugglega mikið til í því enda hefur þetta kostað mig þrotlausa og áralanga vinnu.
Hystería snyrtipinnanna vakti það mikla kátínu hjá þeim sem hlýddu á stólræðurnar að ég hef fengið uppnefnið his satanic majesty.
Skrásett vörumerki.
| 20:45 |