Miðvikudagur, 10. janúar 2007
Sá Apocalyptoið hans Gibsons í gær. Kom skemmtilega á óvart og er í raun fyrst og fremst háklassa hasarmynd. Svona einhvers konar Fangarnir í Sólhofinu meet First Blood. Ekkert andskotans biblíukrapp á ferðinni hér þó Gibson haldi sig við Píslarþráhyggjuna og láti persónur sínar tala eitthvert löngu útdautt hrognamál og hafi hann ætlað að gera einhverja heví sögulega stúdíu á hnignun Majamenningarinnar þá mistekst það og mér er svo sem sama. Þetta er bara púra aksjón og svínvirkar sem slíkt.
Ofbeldið er grafískt, groddalegt og óþægilegt á köflum sem er kostur og einföld sagan sem byggir á öllum helstu grunnþáttum hefðbundinnar hasarmyndar rígheldur frá byrjun. Þetta er svo beisikk plott að myndin verður á köflum ansi fyrirsjáanleg en þá er Gibson kominn með keyrsluna gjörsamlega í botn og manni gæti ekki verið meira sama og þetta er bara gaman. Fjórar stjörnur á þetta. Hiklaust. Og eiginlega ætti hann að fá þá fimmtu fyrir að detta íða og drulla yfir gyðinganna en það þykir víst ekki fínt.
| 22:48 |