»  off record  »  Tengja
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tengja
Þriðjudagur, 09. janúar 2007

Enn ein tenglatiltektin að baki. Henti einhverjum kvitterum út, t.d. PÁÁ og Símoni. Fæ mig ekki til að taka Ármann út enda heldur bloggið hans áfram að vera það besta á landinu þó það uppfærist ekki lengur.

Seljan kemur hins vegar sterkur inn. Erkitöffari og frábær drykkjufélagi. Kriistján Bjarki, fimm stjörnu Dóri, Frikki Þór, Eiríkur Örn og Þór (sem virkar stundum) voru líka vel overdue og svo gat ég ekki neitað mér um að tengja á meinta blaðamanninn Pál Vilhjálmsson. Hann gerir allt of lítið af því að birta drepfyndnar greinar sínar í Mogganum en bloggið hans svalar þörf minni fyrir nojudjóka og vel það.

Hann lýsir því stoltur yfir að bloggið hans sé Ekki Baugmiðill og það er best að ég komi fram af sama heiðarleika og upplýsi að BadaBing! er 100% Baugsmiðill sbr þetta. Lénagjöldin og nettengingin eru greidd með fé frá Baugi. Sama gildir um húsaleigu ritstjórnar auk allra matvæla, áfengis og nikótínlyfja sem brúkuð eru af staffinu sem telur einn mann. Áhrif fjármögnunaraðilans á ritstjórnarstefnuna eru þó engin og álit mitt á Páli væri það sama þó til dæmis Fiskbúð Hafliða héldi rekstrinum gangandi.


| 22:22 |
komment

Eða fiskbúðin Hafberg sem er víst sú besta í bænum...

Nr. 1 | thors | 10.01.2007 | 1:40:30 | [+] |

Undarleg fiskbúðarviðbót kommentamanns nr.1. Honum hlýtur að leiðast.

Dáist annars að þér, Tóti, fyrir að skrifa opinskátt í Fréttablaðið um edrúmennsku og gefa svo skít í það allt saman.

Eftir mislukkaðar meðferðir á launum hlýtur þú að eiga góða yfirmenn.

Þú ert sennilegast á sömu skilmálum og ég? Forkastalegur en of góður til að sparka!

Keep up the good work!

Orri.

Nr. 2 | Orri | 10.01.2007 | 4:20:00 | [+] |

Ætli maður myndi nú ekki fara leynt með drykkjuna ef maður væri svo lélegur að maður gæti ekki staðið undir henni?

Annars er þetta ekkert aðdáunarvert þar sem skilin milli raunveruleika og skáldskapar hér eru svo óljós að ég veit ekki einu sinni sjálfur hvenær ég er að ljúga. Hér er því ekkert sem staðfestir að ég sé fyllibytta. Gæti allt eins verið clean and sober.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 10.01.2007 | 17:08:45 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff