Föstudagur, 05. janúar 2007
Það gengur frekar illa að draga strákana í vinnunni í bjór og burger. Versta afsökunin kom frá þeim sem er kominn í blaðamennskukúrs hjá Jónasi í HR en sá sagðist þurfa að fara heim að læra.
Tók hann í krasskúrs í Blaðamennsku 101: Öllum góðum blaðamönnum ber að fá sér bjór að loknum störfum á föstudegi. Restin er svo enn einfaldari. Eiginlega bara to the fucking point reglan sem gengur út á að frétt er ekki ritgerð með inngangi, meginmáli og lokaorði og fréttpunkturinn á að koma í fyrstu málsgrein. Svo á auðvitað bara að lesa (tossar geta horft á) All The President´s Men og leiðara Jónasar á Jónas.is og þá er fólk útskrifað.
Einn stóran bjór, takk.