»  off record  »  Undan ferðamannsins fæti...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Undan ferðamannsins fæti...
Þriðjudagur, 09. janúar 2007

Held að þessi síða verði fimm ára í vor. Það er amk svo langt um liðið að ég man ekki hvort búið var að finna bloggið upp þá eða ekki. Hallast þó frekar að fyrri kostinum þar sem ég man að fyrrverandi tengdapabbi minn var byrjaður að vefa net og senda tölvupósta niðri í löngu áður en nokkur manneskja var farin að tala um internet og ímeila. Það er því ekkert útilokað að einhverjir nördar hjá NASA séu búnir að blogga síðan ég var í leikskóla.

Skiptir svo sem engu enda hef ég ekki áhuga á neinu öðru en sjálfum mér. Þessi síða hefur tekið nokkrum breytingum á þessum árum og Anna er búin að taka útlitssögu BadaBing! saman. Hönnuðurinn sjálfur er ekki sáttur við þetta lúkk en lét undan dyntum smekklauss og litblinds eigandans. Þessi græna er nú sennilega alltaf best.

Flöktandi útlitið breytir svo aftur engu um það að innihaldið er alltaf eins og tóninn sá sami. Þessar færslur frá 2004 gætu hafa verið skrifaðar í gær. Breytir greinilega engu hvort ég er í neyslu eða ekki áfengi er merkingarmiðja tilverunnar. Sem minnir mig á að nýþurrkaður kunningi minn hafði samband nýlega og spurði hvort ég vildi ekki hætta aftur með tilheyrandi neðanmálsgreinum um vellíðan og hamingju. Viðbjóðslega fráhrindandi hugtök sem í heimi hins óvirka byggja á trú á eitthvað sem fær ekki staðist. Af tvennu illu og ég hef reynt báða kosti kýs ég að fara í gegnum lífið án þess að afsala mér þeim sjálfsögðu mannréttindum að drekka rauðvín þegar mig langar til.

Svarið mitt var því einfalt og spontant: ALDREI

Æðri máttur virkaði ekki fyrir mig af sömu ástæðu og krossinn virkaði ekki fyrir ræfilinn í The Lost Boys sem hélt tákninu um gæsku Krists að vampírunni. It doesn´t work if you don´t believe in it. Sagði blóðsugan áður en hún drakk gaurinn í botn.


| 21:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff