Mánudagur, 08. janúar 2007
MIG LANGAR Í SÍGARETTU!!!!!!!!!!!!
helvítis, djöfulsins andskotans, ömurlega, innantóma, ógeðslega leiðinlega reyklausa líf. Lungun, heilsan og þessi fjandans ósæð í sjónvarpsauglýsingunni geta ekki verið þess virði að leggja þetta á sig.
Þessi löngun mun aldrei fara. Alveg sama hversu marga maður plástra maður setur á staði á líkamanum þar sem engin eru sárin.
It´s in October, sitting on the bench in front of Bell´s and watching the lake from afar off, that I still wish I was a smoking man," segir sögumaður smásögunnar Mrs. Todd´s Shortcut eftir Stephen King. Síðan rekur hann einhverjar hörmungar og hrylling og lýkur svo sögunni á þessum orðum: ... and I don´t necessarily wish I was were they are ... but I still wish I was a smoking man.
Segjum tveir
| 20:23 |