»  off record  »  Forræðisdeila og dauði
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Forræðisdeila og dauði
Mánudagur, 12. febrúar 2007

jre.jpgPósturinn kom um daginn með stöff frá Amazon: Dallas Season 5, Soap Season 2 og Casino Royale eftir Flemming. Dallas þolir minnsta bið enda datt Season 6 í hús í dag. Það er allt að gerast í fimmunni. Jock er dauður. Það er að segja leikarinn Jim Davis en það er ekki enn búið að skrifa kallinn út þannig að hann er á miklu flakki. Byrjar í París, fer þaðan til New York og síðan til Washington. Minnir að hann fari svo að sniffa eftir olíu í Afríku þar sem hann drepst loksins í þyrluslysi.

Þar sem Davis er dauður er Jock mikið í símanum og alltaf að hringja á Southfork með ströng fyrirmæli eins og sönnum patríarka sæmir. Hann er ekki síst að pressa á J.R. að ná John Ross litla úr klónum á Sue Ellen og krypplingnum honum Dusty en þau eru vel völduð af Clayton Farlow (sem er svalur) á Southern Cross búgarðinum. Á meðan eru Pam og Bobby að fríka út á barnleysinu og leita logandi ljósi að barni til að ættleiða.

Annars er Pamela alltaf svo döpur. Skil ekki alveg hvað Dúkkulísurnar voru að meina með laginu sínu í den. Ekki beint eftirsóknarvert að vera Pamela í Dallas. Skemmtilegra að vera J.R. enda heldur hann þessu öllu gangandi og ég get ekki stillt mig um að spá í allan þann skaða sem hann hefði getað gert. Eða árangur sem hann hefði náð hefði hann haft GSM síma og fartölvu. Heimurinn hefði orðið hans.

J.R. ætlar að beita öllum brögðum til að hafa krakkann af Sue Ellen og er óneitanlega með sterka stöðu, eins og lögfræðingur Sú Ellennar bendir á:

Sú Ellen: And if J.R. wants to dig into my past, then I can give you names of his women that will fill up a phone book. Including my own sister. And if he wants to show that I am an unfit mother, then I am willing to prove that he is unnfit to be a member of the human race.

Lögfræðingurinn: Sue Ellen, you two slingin mud at one other isn´t going to help either you or J.R.
Now, I want you to listen to what I have to say. It would be one thing if the hearing were held in New York or Los Angeles. But it´s not. This is Texas.

Sú Ellen: What´s the difference?

Lögfræðingurinn: This may be the last bastion of male chauvinism. Whatever J.R. has done, most of it´ll be dismissed as just a good old macho Texas boy. But a wife who cheated on her husband and then deserted him for another man...

Sú Ellen: But that´s idiocy.

Lögfræðingurinn: Your´re right, it is. But that´s the way it is. All that´s changing, for the better but right now... well Sue Ellen I wouldn´t be too confident that the court will decide in your favor.

Þessi þáttur er sennilega frá 1981 eða 1982. Staða kvenna í Dallas er stórmerkileg næstum samtímaheimild. Renna samt tvær grímur á skúrkinn þegar lögfræðingurinn spilar geldingskortinu og upplýsir réttinn um að Sú Ellen hafi ekki hlaupið upp í til Dusty þar sem hann sé gagnslaus pa sengekanten. Barnið sé því ekki að horfa upp á stóðlífi heldur sanna ást þar sem mamma ætlar að eyða því sem eftir er ævinnar sem nunna á Suðurkrossi.


| 21:32 |
komment

Drapst kallinn ekki á endanum í þyrluslysi í Venesúela? Djöfull gat hann urrað sá gamli.

Nr. 1 | Magnús | 13.02.2007 | 12:34:29 | [+] |

Það var amk Suður Ameríka en ekki Afríka og Venesúela hljómar helvíti vel.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 13.02.2007 | 14:26:29 | [+] |

Geturðu sagt mér, hvað var Dallas sýnt lengi í Ríkissjónvaripnu? Fram yfir 1990?

kv.
ÁBS

Nr. 3 | ábs | 14.02.2007 | 1:45:11 | [+] |

Sko, ég man þetta ekki nákvæmlega en Stöð 2 nappaði þessu af RÚV og þar runnu þættirnir sitt skeið. Þeir voru framleiddir til 1991 og hafa því pottþétt verið sýndir í íslensku sjónvarpi eftir 1990. Allt mitt tímatal á seinni árum miðast við fæðingar barnanna minna og ballið var búið áður en frumburðurinn kom í heiminn í september 1992. Þannig að J.R. hefur framið meint sjálfsmorð sitt á Stöð 2 á árabilinu 1991-1992 þannig að þú ert in the clear ef persónan horfði á Dallas eftir 1990..

Nr. 4 | Tóti sjálfur | 14.02.2007 | 10:23:33 | [+] |

Kærar þakkir. Það er því ekkert athugavert við að manneskja (sögupersóna) fædd 1979 eða 1980 hafi haft nokkur kynni af Dallas í æsku.

Ég var búinn að steingleyma þessum flutningi þáttarins yfir á Stöð 2.


Nr. 5 | ábs | 14.02.2007 | 22:34:26 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff