Laugardagur, 17. mars 2007
Hann Gummi sem ætlar á þing rifjar það upp í Bakþönkum sínum í dag þegar við fórum fyrir um það bil fjórum árum, ásamt fjöldanum öllum af hugsandi fólki, að mótmæla stríðsbrölti Íslendinga og fleiri staðfastra þjóða í Írak. Þetta var afskaplega huggulegt eftirmiðdegi en samt leið manni óttalega illa innra með sér.
Samkvæmt þessari gömlu færslu bárum við Gummi harm okkar í hljóði á meðan Biggi öskraði. Skil ekki hvaða bæling greip okkur félagana en hvorugur okkar var svo sem á leiðinni á þing þá og Gummi má eiga það að hann hefur látið heyra hressilega í sér síðan og er meira að segja samkvæmur sjálfum sér. Enda er Gummi einfaldlega Gummi og leiðist það ekkert voðalega.
| 15:44 |