»  off record  »  Final analysis
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Final analysis
Mánudagur, 05. mars 2007

Fór til læknis á föstudaginn til þess að fá skyndilausn á vandamáli sem hefur hrjáð mig í mörg ár og ég hef kosið að kalla síþreytu. Fékk sjúkdómsgreiningu sem ég er ekki alveg að fíla en veit að er rétt. Vissi það áður en ég talaði við lækninn en var að vona að hann gæti fundið eitthvað líkamlegt að mér sem hægt væri að laga snarlega með lyfjagöf. En díagnósann var semsagt: Bóhemlíf

Ég er veikur af bóhemlífi. Fuck.

Ég var alveg heiðarlegur. Sagði honum að ég væri alltaf þreyttur. Svo þreyttur að þreytan skilaði sér oftast í líkamlegum sársauka sem væri svo þrúgandi að þegar ég finndi fyrir henni gréti ég, yrði þunglyndur og langaði til að drepa mig. Viðurkenndi líka að ég væri í stressandi djobbi, svæfi óreglulega, það væri enn meiri óregla á mataræðinu og ég borðaði bara skyndibita, reykti og neytti áfengis í magni sem væri langt yfir því sem gæti talist normal. Eins gott að ég reyndi ekki að ljúga þar sem hann sagðist vita allt um mig, læsi pistlana mína sjáðu til.

Kannski spurning um að hætta að ljúga í skrifum til þess að eiga sjéns á hlutlausri sjúkdómsgreiningu? Breytir samt engu. Hann tók blóðþrýstinginn sem var undir mörkum þrátt fyrir nýafstaðin prentsmiðjuskil. Ekkert nýtt svo sem. Þrýstingurinn hjá mér fer aldrei upp, sama á hverju gengur. Hann sýndi mér samt þá virðingu að panta blóðprufu þó við vitum báðir hvar vandinn liggur. Ef hann finnur ekkert að blóðinu, sem hann mun ekki gera, ætlar hann að taka mig í gegn og skipa mér að hætta að reykja, sofa reglulega, hreyfa mig og borða mat. Já, og draga eitthvað úr drykkju. Áfengi er víst eitur en ég vissi það svo sem líka.

Það sem hræðir mig mest er að ég veit að ég mun gera eins og Árni Scheving segir mér að gera þar sem ég veit að sjúkdómsgreiningin er rétt hjá honum og að ég er too old for this shit. Ég veit alveg að það er bóhemlíf sem er að drepa mig en smáborgaralífið er bara svo viðbjóðslega leiðinlegt. Been there. Done that. Manni líður voða vel, en kræst hvað það er glatað og fuckin´ dull. Kannski maður láti sig bara hverfa eins og Steppenwolf?

Ballið er amk búið en þetta var good run. Helvíti gott og ég hefði ekki viljað missa af mínútu, nema auðvitað öllum þeim þúsund mínútum sem fóru í blakkát, en þær voru líka góðar. Efast ekki um það. Eða hvað? Ég held ég sé efins en þó ekki viss, eins og skáldið sagði.


| 0:29 |
komment

Þrátt fyrir allt, frekar vill maður deyja úr bóhemisma heldur en úthverfaisma með bónuspokann í fanginu.

Nr. 1 | valur | 5.03.2007 | 12:11:26 | [+] |

Mæltu manna heilastur, kúturinn minn. It´s better to burn out than fade away eins og sá vondi í Highlander sagði eftir að hafa sjokkerað nunnurnar.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 5.03.2007 | 14:07:06 | [+] |

Það er best að vera svívirðilega leiðinlegur þrátt fyrir þíðuna milli okkar: Vandamál þitt er það að þú ert alkóhólisti. Ef þú værir það ekki gætirðu lifað bóhemlífi og verið við fína heilsu.

Nr. 3 | ábs | 5.03.2007 | 23:50:24 | [+] |

Hey er þetta nú ekki einum of létt hjá doktornum? Hann er að gefa sér hlutina fyrirfram. Það er búið að finna upp alveg fullt af fínum sjúkdómum sem er hægt að lækna með nýmóðins lyfjum. Spurning um að fara til einhevrs af þessum útlendu læknum sem eru ekki alltaf á kafi í blaðalestri.

Nr. 4 | Ingó | 6.03.2007 | 1:09:05 | [+] |

Alki! Ég? Nei hættu nú alveg Ágúst Borgþór Sverrisson.

Nr. 5 | Tóti sjálfur | 6.03.2007 | 19:36:37 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff