»  off record  »  Teningunum er kastað
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Teningunum er kastað
Laugardagur, 17. mars 2007

Vinátta er stórlega vanmetið og umleið ofmetið fyrirbæri og persónulega finnst mér fólk misnota hugtakið vinur stórkostlega í daglegu tali. Vinur er einhver sem þú treystir fyrir lífi þínu og þínum dýpstu leyndarmálum. Þú elskar þá ekki eins og makann eða börnin þín. Þetta er öðruvísi.

Allir eru tilbúnir til þess að deyja fyrir börnin sín enda er ást foreldris á barni það tærasta og ómengaðasta sem til er. Óeigingjörn ást. Sá sem segist vilja deyja fyrir ástina sína (þó hann langi bara að ríða henni) lýgur. Pointless að deyja fyrir einhvern sem þig langar til að ríða vegna þess að það segir sig sjálft að þá muntu ekki ríða viðkomandi framar og fyrr eða síðar mun einhver annar gera það. Þá liggur í augum uppi að maður fer ekki að fórna lífi sínu fyrir vin sinn en maður gæti verið tilbúinn til þess að deyja með honum.

Ég get ekki að því gert að í þessu sambandi verður mér hugsað til Spartverja, Leonídasar og 300. Það er eitthvert tískufyrirbæri að blogga um Spörtu og 300 núna vegna þess að myndin er kominn í bíó. Ég ætla að sleppa því í bíli enda búinn að segja allt sem þarf að segja um það mál hér fyrir löngu síðan (var í þriðja bekk í MR jú sí og þarf ekki Hollywood til þess að fræða mig um frækilegustu vörn mannkynnsögunnar, fyrir utan það að ég á pabba og börnin mín afa, sem betur fer, en samt Benefits of a classical education). Bendi í þessu sambandi á leitarvélina hérna og leitarorðin Sparta, Leonídas, Laugaskörð , 300 og mestu töffarar allra tíma. Breytir því ekki að ég mun verja þessa menn síðar fyrir árásum Jónasar Kristjánssonar og utanríkisráðherra Írans. Persar my ass.

Anyhu. Þegar okkar menn (fasistar sem hjálpuðu hommunum í Aþenu að standa vörð um Grikkland sem allir vita að er vagga lýðræðis og vestrænnar menningar) deyja í bíómyndinni (ég næstum grét í bíó í kvöld) segir einn Spartverjinn, sundurskotinn af örvum málaliðaskríls Xersesar við Leonídas sem er eins fyrir komið: Konungur minn, það er mér heiður að deyja við hlið þér. Og Leonídas (Bjólfur Butler) tekur í hönd deyjandi hermannsins og svarar: Það var mér heiður að lifa við hliðina á þér. Þetta er vinátta og súmmerar upp allt sem hún snýst um. Og já, ég er sammála Stephen King (Stand by Me) um að þú eignast ekki raunverulega vini eftir að þú verður 12 ára, enda á ég bara tvo. Fyrrverandi eiginkonu mína og Ingvar sem hefur, frá því ég var sex ára og hann fimm, verið Tumi engispretta to my Pinoccio.

Það geta liðið mánuðir og ár á milli þess sem við tölum saman en í hvert skipti sem við hittumst er eins og við hefðum síðast kvaðst í gær. Þetta er mælikvarði á raunverulega vináttu. Þessi maður sem er einn sá mikilvægasti í lífi mínu þó ég hafi ekki hitt hann í amk 2 ár átti afmæli í gær. Þann 16. mars og ég man það bara vegna þess að degi áður árið 44 fyrir Krists burð var Júlíusi Sesar slátrað (af vinum?). Samt spurning hvort ég muni dánardægur Sesars (benefits of a classical education, again?) vegna afmælisdags besta vinar míns eða öfugt. Skiptir ekki máli:

Þú áttir afmæli í gær elsku besti elsti vinur minn. Here´s to you buddy sucking my dick. Guys like you, you do grow on trees.

Kunningjar eru eitt. Vinir eru eitthvað allt, allt annað.

Ferðamaður, seg þú Spartverjum að vér hvílum hér fyrir því að vér hlýddum lögum þeirra.

Lögin ganga beisikklí út á það að fylkinguna má aldrei rjúfa og þú verð með skyldi þínum manninn vinstra megin við þig frá læri og upp að hálsi. Sterkasti bandamaður (vinur) Spartverjans er maðurinn við hliðina á honum.


| 3:59 |
komment

Takk Toggi minn fyrir hlý orð.

Þá langt sé um liðið síðan við hittumst síðast þá er ég nú ennþá hér og til staðar og hugsa að auki til þín.

Ég verð allavega á landinu næsta sumar. Þá er tækifæri. En ég býst nú líka við að ég sé enn á "öxlinni" á þér eins og forðum... hvíslandi í eyrað á þér.

Takk fyrir afmæliskveðjuna! Við sjáumst svo bráðum...

Ingvar

Andrew Dice Clay er góður enn í dag!

Nr. 1 | Ingvar | 17.03.2007 | 20:53:13 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff