»  off record  »  Byron is dead!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Byron is dead!
Föstudagur, 20. apríl 2007

Hún Kolla mín minntist þess á kúltúrsíðunni sinni í blaðinu Blaðinu í gær að Lord Byron lést þann 19. apríl 1924. Ég stend fastur á því að Byron hafi verið fyrsta poppstjarnan og eins og Kolla bendir á þá varð hann svo "þekktur og umdeildur að orðið byronskur hefur ratað í orðabækur og merkir allt í senn: rómantískur, hrokafullur, myrkur og kaldhæðinn."

Kannski ekki furða að maður hafi gert þennan mann að einum af leiðtogum líf síns. Sjálfur er ég samt alltaf hrifnastur af því sem Lady Caroline Lamb, fyrrum ástkona hans hafði um hann að segja: "Mad, bad and dangerous to know."

Svo er hann auðvitað fyrirmyndin að Dracula og er því eilífur og sennilega ekki dauðari en Presley.


| 0:18 |
komment

Sem The Cross notaði sem titil á plötu sína.

Nr. 1 | Óli Gneisti | 20.04.2007 | 0:47:33 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff