Þriðjudagur, 24. apríl 2007
Jeltsín er dauður. Mér fannst hann svoldð töff á sínum tíma þegar hann æddi út á hvítu skyrtunni og stökk upp á frambrettið á skriðdrekanum á meðan Gorbatsjov var haldið nauðugum í sumarbústaðnum af valdaræningjum. Kallinn var þó ekki nándar nærri jafn töff og leiðarar Jónasar Kristjánssonar um hann í eldgamla DV. Þeir eru með því magnaðasta sem ritað hefur verið á íslenska tungu og settu af stað milliríkjadeilu á milli Íslands og Rússlands.
Leiðarinn Burt með rónann gerði Júrí í sendiráðinu alveg saltvondan:
Einkum vilja auðhringafurstarnir þó áfram hafa hálfdauðan róna sem forseta. Hann eyðir mestum hluta tímans í kojufyllirí í sumarhúsi sínu, en birtist einstaka sinnum í Moskvu til að rugla dæmið og reka ráðherra. Á meðan geta auðhringarnir makað krókinn.
Einn af mínu skárri kunningjum sagði þetta við mig á msn í gær. Finnst það soldið sætt en er samt ekki svo viss um að Boris hafi verið pöþettikk.
hey
til hamingju með efsta sætið
orðin pöþettikk drönk nr 1 eftir að jeltsín drapst