Þú verður ekki lengi í þessu - sem rithöfundur áttu heima í glæpasögunum. Stíllisti, bíófíkill og reyfarafíkill - þetta er uppskriftin. Ég sagði þetta við Ævar Örn á sínum tíma en hann gaf ekkert út á það - á meðan var hann á fullu að skrifa Skítadjobb án þess að nokkur vissi um það - og síðan hló hann framan í mig um haustið. Nú og Arnaldur var síðan eins og allir vita blaðamaður og bíósjúklingur áratugum saman áður en fyrsta bókin hans kom út.