Fimmtudagur, 03. maí 2007
... eða illa farið með góðan dreng
Mér er nú yfirleitt nákvæmlega sama um allt enda skiptir ekkert máli í stóra samhenginu og sagan mun malbika yfir okkur öll fyrir rest. Svona meira eða minna. Heldur fer hann nú samt í taugarnar á mér þessi þriggja mánaða skilorðsbundni dómur yfir honum Jóni Ásgeiri. Ég þekki manninn ekki neitt þó ég hafi einu sinni haft af honum rauðvínsflösku en fyrir utan þann höfðingsskap þá hefur hann séð mér fyrir atvinnu frá árinu 2002 til dagsins í dag. Ég met það mikils og finnst fallegt af Jóni Ásgeiri að nenna yfirleitt að eiga, reka og henda peningum í fjölmiðla í jafn leiðinlegu samfélagi og því íslenska.
Réttast væri að smala í hressilega kröfugöngu og krefjast algerrar sýknu yfir JÁJ fyrir einhverja mestu kjarabót til handa almenningi á síðustu áratugum með opnun Bónuss og svo auðvitað fyrir að vera alltaf að búa til vinnu fyrir mig.
Þessi léttvægi dómur er svo auðvitað ansi lömuð útkoma eftir allt sem á undan hefur gengið og eigi þetta að verða til þess að ákæruvaldið geti haldið feisi í málinu þá er það vitaskuld algalið. En ég er semsagt ekki hlutlaus í málinu og í stuttu máli sagt, þannig að jafnvel sjálfstæðismenn geti skilið það. Óvinir Jóns Ásgeirs eru óvinir mínir.