Laugardagur, 12. maí 2007
Ég nenni ekki að kjósa. Nenni ekki út úr húsi yfirleitt. Minnir að ég hafi kosið VG síðast og ætti auðvitað að gera það aftur. Ef ég nenni. Þyrfti samt eiginlega líka að kjósa Össur en hann kemst þó líklega af án atkvæðis míns, rétt eins og fyrir fjórum árum. Hann er samt krúttlegur og skemmtilegur kall.
Fór víða í gærkvöld og það gladdi mig að heyra hversu almenn fyrirlitning fólks á Framsóknarfloknum er. Verst samt að hann á alltaf falið fylgi sem skríður fram á kjördag. Skoðankannanir eru nefnilega ekki marktækar þegar Framsókn er annars vegar. Ef Gallup hringdi í fólk og spyrði hvort það læsi Hustler að staðaldri eða rúnkaði sér 4 sinnum eða oftar í viku myndu margir segja "nei". Líka þeir sem gera þetta. Maður viðurkenninr nefnilega ekki allt. Ekki einu sinni fyrir sjálfum sér og ég hugsa að þeir séu ansi margir kjósendur Framsóknarflokksins sem geta ekki einu sinni sagt það upphátt við sjálfa sig að þeir kjósi flokkinn enda er það klám. Þetta fólk hefur líka sjálfsagt ekki hugmynd um hvers vegna í ósköpunum það kýs þessa óværu.
Mér datt samt í hug í gær að bregða á leik í þessum kosningum. Gera eitthvað reglulega flippað og kjósa X-B. Þegar ég pæli betur í þessu þá held ég samt að djókurinn sé ekki nógu góður til að standa undir sér og eftir á myndi mér örugglega finnast ég vera skítugur. Sé fyrir mér að bömmerinn gæti jafnast á við verstu blakkátskandalana.
Fokk it. Kýs bara íhaldið enda þrái ég ekkert heitar en stöðugleika eftir að ég varð gömul og hugsjónalaus heybrók.
| 15:31 |