»  off record  »  Hostel II
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hostel II
Laugardagur, 09. júní 2007

Hostel er með óþægilegri myndum sem ég hef séð í bíó. Fyrsti splatterinn sem ég hef séð í um það bil 20 ár sem náði til mín og fékk mig til að gretta mig amk einu sinni. Hostel og Irréversible eru þær tvær myndir sem ég hefði ekki viljað missa af en kæri mig samt ekki um að sjá aftur.

Ég fór því með umtalsverðar væntingar á Hostel Part II og gekk að því sem gefnu að Eli myndi koma við kauninn á mér og ég myndi ganga endurnærður á sál og líkama úr bíósalnum eftir hressilegan skammt af yfirgengilegum viðbjóði. Saw 2 og 3, Texas Chainsaw Massacre: The Beginning og The Hills Have Eyes endurgerðirnar báðar hafa ekki gert neitt fyrir mig enda algjört sissy stuff.


Prúðmennið Eli hefði átt að leika sér að því að toppa þetta með stæl en Hostel Part II er bara ekki að gera sig. Eli er búinn að missa sig í typpametingi við félaga sína í The Splat Pack og stólar á örfá gross out atriði sem eiga að ganga lengra en það sem hann hefur gert áður og vinna ógeðskeppnina þannig með ódýrum trixum. Ónotin sem framhaldið vekur eru fyrst og fremst fengin í arf frá forveranum og þegar sögunni víkur aftur að "verksmiðjunni" fer um mann vegna minniganna frá fyrri heimsókninni en þetta innlit gerir ekki mikið fyrir mann.

Blóðbaðsvísunin í Erzsébet Báthory er vissulega smart og það flottasta í myndinni og kvikindinu tókst að fá mig til að gretta mig einu sinni í viðbjóði. Með því að láta fjarlægja eitt stykki púng með garðklippum og henda afklipptum getnaðarlimi í hundskjaft. Billegt. Hvaða karlmaður fer ekki í keng yfir slíkum trakteringum?

Annars er þetta bara same old og það er svekkelsi vegna þess að maður veit að Eli kann þetta upp á sína tíu fingur en framhaldið stendur fyrri myndinni langt að baki. Frumelimentin gleymast og hér er allt of lítið af kynlífi, berum brjóstum og rössum. Kannski var full mikið af slíku í Hostel en þessi eliment eiga að vera til staðar og hér er skortur enda kannski ekki við öðru að búast þar sem enginn Íslendingur ríður sig í gegnum Slóvakíu að þessu sinni. Bláa lónsatriðið er í besta falli hallærislegt og þjónar engum tilgangi öðrum en að réttlæta drykkjuferð til Íslands þar fyrir utan er viðbjóðurinn lengi í gang og loksins þegar hann byrjar er hann soft porn miðað við Hostel.

Eli leikur sér samt ágætlega með steríótýpur hryllingsmyndanna og snýr mátulega ófrumlega upp á þær. Tilraunir til persónusköpunnar og dýpkunar sögunnar eru virðingarverðar en mislukkaðar þannig að Roth hefur ekki enn sannað sig sem alvöruleikstjóri þó Cabin Fever og Hostel hafi verið þrælgóðar fyrir sinn hatt. Eli gerir varla mikið meira fyrir hryllinginn í bili og ætti að fikta við eitthvað annað næst. Annars fer þetta að styttast í annan endann hjá honum.

Gellurnar eru slarkfærar að þessu sinni en ekkert meira en það. Desperate Housewives gaurarnir Roger Bart (geggjaði apótekarinn) og Richard Burgi (hinn illþolanlegi fyrrum eiginmaður Susan) eru hins vegar bráðskemmtilegir og lyfta þessu á hærra plan. Fúndamental klikkelsið liggur hins vegar í viðbjóðnum og þar er ekki við neinn annan en Eli að sakast. Hann þarf nú að þvo meira blóð af höndum sér en Eyjólfur Sverrisson ætli hann að skora aftur.


Eli á Vegamótum

Hostel viðtalið

Cabin Fever viðtal

Annað Cabin Fever viðtal


| 22:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff