Þriðjudagur, 19. júní 2007
Sjálfsagt fyrirfinnast einhvers staðar blaðamenn sem bera virðingu fyrir siðanefnd BÍ og óttast úrskurði hennar. Ég hef held ég aldrei átt orðastað við slíka blaðamenn enda aldrei kunnað vel við mig í félagsskap smáborgara. Þessi tengund blaðamanna hefur þar fyrir utan aðallega hreiðrað um sig í Hádegismóum þó mér segi þó því miður svo hugur að tegundin sé farin að fjölga sér í Skaftahlíð.
Annars er auðvitað ekkert að marka mig þegar kemur að siðanefnd BÍ þar sem ég hef borið virðingu fyrir og litið upp til Jónasar Kristjánssonar frá því ég var krakki. Þetta er auðvitað mitt vandamál en þó ber að hafa í huga að Jónas náði til mín í bernsku þó afi minn og traustasta haldreipi í lífinu hafi verið einn af höfuðpáfum flokksblaðamenningarinnar og ég hafi smitast af blaðamennslubakteríunni með tíðum heimsóknum á Tímann í Síðumúla.
Jónas sagði á bloggi sínu ekki alls fyrir löngu að siðanefndin væri aumasta nefnd landsins. Það er satt og rétt. Þar af leiðandi er hún ekki marktæk í neinu máli. Annars nenni ég ekki að þusa um þetta. Jakob hittir í mark í kommentunum á Mannlíf.is og Jónas segir þar fyrir utan allt sem segja þarf í dag:
"Enn einu sinni hefur furðuleg siðanefnd Blaðamannafélags Íslands kveðið upp fáranlegan úrskurð. Nýjasta plaggið lýsir þekkingarskorti á blaðamennsku og vanþekkingu á málinu. Kastljós hefur svarað málefnalega og sannfærandi, lið fyrir lið. Blaðamannafélagið þarf að fara að taka á þessari meinsemd í félaginu. Siðareglur félagsins eru að vísu fjarska gamlar og lélegar..."
| 22:27 |