Fimmtudagur, 07. júní 2007
Því miður hringdi Sledge Hammer ekki í FM957 í morgun. Hann hefði að vísu ekki komist að fyrir barnalandskerlingatuðrum sem lágu á línunni til þess að uppfræða hnakka um meðgöngu, viðbrögð við þungunarprófi í beinni og hvað það er ofboðslega æðislegt að eignast börn.
Þegar Hammer var í leikfangalandi hitti hann dótauppfinningamann og kerlingatruntu sem hann hélt við en sú var ekkja myrts eiganda verksmiðjunnar. Eftir að hafa átt við þau orðastað sagði Hammer þetta að skilnaði:
Do me a favour. Don´t breed.
Það virðist vera of seint í þessu tilfelli.