»  off record  »  64.9
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
64.9
Mánudagur, 02. júlí 2007

Krúttlegar feitabollur sem blogga um baráttu sína við aukakílóin hafa löngum tekið upp töluvert pláss í netheimum. Sennilega bara í jöfnu hlutfalli við rýmið sem þær fylla í kjötheimum. Öllu minna fer fyrir okkur hinum sem höngum á horriminni langt undir kjörþyngd, helköttuð frá náttúrunnar hendi, ekki með fituörðu utan á okkur, og berjumst vonlítilli baráttu við að bæta á okkur týndu kílóunum.

Ég hef setið fastur í 63 kílóunum í nokkur ár og hef ekki með nokkru móti náð að endurheimta þau tæp 7 kíló sem hurfu af mér þegar ég hætti að drekka fyrir nokkrum árum. Byrjaði samt aftur að drekka en þróaði í millitíðinni króníska andstyggð á bjór sem er fyrirlitlegur lúðadrykkur. Kannski liggja týndu kílóin hjá Thule, Becks og Tuborg.

Nú er landið hins vegar skyndilega farið að rísa og samkvæmt tölvuvoginni í Árbæjarlaug er ég 64.9 kíló og hef því þyngst um 1.9 kg frá því ég steig síðast á vigtina í Vesturbæjarlauginni á síðasta ári. Meðfædd svartsýnin segir mér þó að vigtin í Árbænum sé röng og staðan yrði sú sama eða jafnvel verri færi ég á mína einu réttu vog í Vesturbænum.

Þó ég hafi aðeins stundað nám við heimspekideild HÍ veit ég sitthvað um vísindaleg vinnubrögð og er full meðvitaður um að það gengur ekki að skipta um mælitæki í miðri rannsókn og mun því gera samanburðarmælingu í Vesturbæjarlaug fljótlega. En þangað til þá ætla ég að njóta þess að ég skuli vera að fitna.


| 17:01 |
komment

taktu þessu bara af stóískri ró. þú þyngist ef þú þyngist, annars ekki. örlögin eru bara eins og þau eru. nema þú gerir eitthvað í því og drekkir bjór. eða étir nammi.
allt á sér orsök. það eru afleiðingarnar sem eru óljósar...eða stundum kannski öfugt.

Nr. 1 | arnar | 2.07.2007 | 19:59:53 | [+] |

Ertu að launmonta þig, mannhelvíti?

Nr. 2 | ábs | 3.07.2007 | 1:29:19 | [+] |

Monta mig, moi? Þú af öllum hlýtur að skynja angistina og einlægnina í þessu. Það er ekkert grín að þurfa endalaust að þola háðsglósur og skens vegna undirþyngdar.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 3.07.2007 | 20:29:13 | [+] |

hehe - yeah right

Nr. 4 | ábs | 5.07.2007 | 17:11:43 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff