»  off record  »  Rei
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Rei
Fimmtudagur, 25. október 2007

Í öllu þessu fjasi um REI hefur mér oft verið hugsað til hins eina sanna Rei. Það er að segja Ray Krebbs. Gráhærða og góða kúrekans í Dallas sem var ungur ráðinn ráðsmaður á Southfork þar sem hann ólst upp. Í einhveri krísunni í season 4 eða 5 ákváðu handritshöfundarnir að gera hann að óskilgetnum syni Jocks.

Í öllu þessu fjasi um REI hefur mér oft verið hugsað til hins eina sanna Rei. Það er að segja Ray Krebbs. Gráhærða og góða kúrekans í Dallas sem var ungur ráðinn ráðsmaður á Southfork þar sem hann ólst upp. Í einhveri krísunni í season 4 eða 5 ákváðu handritshöfundarnir að gera hann að óskilgetnum syni Jocks. Við það fékk REI töluverða uppreisn. Varð næstum fullgildur karlmaður í olíbarónasamfélaginu í Texas með eignarhlut í Ewing Oil. Hann fór líka að taka þátt í fjárfestingum með peningamönnum, aðallega Jock pabba og vini hans Punk Anderson. Eftir að pabbi dó hallaði hins vegar undan hjá fæti og lukkan í viðskiptum og lóðabraski snerist honum í óhag.

Hálfbróðirinn J.R. var nú ekkert sérstaklega að fíla upphefð REI innan fjölskyldunnar og gerði allt til að klekkja á honum og náði fyrir rest af honum eignarhlutnum í olífélaginu og ýtti honum út í drykkjuskap og framhjáhald. REI átti semsagt ekkert sérstaka samleið með viðskipajöfrum og fór ætíð halloka í viðskiptum við þá kóna.

Ekki voru heldur samfarir REI og pólitíkusa áfallalausar en hann gekk einmitt að eiga stjórnmálakonuna Donnu Culver sem hann gat aldrei lagað sig almennilega að. Hann stóð einhvern veginn alltaf í skugga hennar og fannst hann ekki geta notið sín til fullnustu í hjónabandinu enda sárþjakaður af minnimáttarkennd. Ekki síst vegna viðskipta sinna við auðmenn eins og J.R en REI hélt einmitt fram hjá Donnu fyrir tilverknað J.R.

Donna gaf þó REI ekki alveg upp á bátinn þrátt fyrir hliðarsporið og fótaskortinn á auðsvellinu og tók hann aftur. Enda hafði hin jarðnána, eiginlega vinstri græna, Miss Ellie áður sagt að allir ættu skilið annan sjéns. Líka REI. Eftir það minnir mig að REI hafi að mestu haldið sig á búgarðinum, fjarri glys og glaum og komist ágætlega af í sambúð með Donnu og auðmennina í næsta nágrenni.

Erum við bara tveir sem sjáum líkindin eða getur verið að Íslendingar séu svo glataðir að handritið að hringavitleysu síðustu vikna hafi í raun verið skrifað af amerískum sjónvarpshandritshöfundum fyrir rúmlega tuttugu árum. Sé það tilfellið er ekki hægt að ná utan um kaldhæðnina sem fólgin er í því að Gísli Marteinn Baldursson var eða er í litlu stuttbuxnastrákafélagi sem stofnað var utan um pílagrímsför til Southfork. Horfði hann þá samt aldrei á þættina?


| 18:36 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff