»  off record  »  desember 2007
off record
desember 2007

a long time ago...
Loksins
Fimmtudagur, 13. desember 2007

Réttast væri að opna rauðvín, drekka hana yfir loka-lokaþætti Sópranós og gráta yfir því að þetta sé búið. Maður rétt náði að halda aftur af tárunum þegar Silvio fékk hálfgert Sonny Corleone trítment fyrir framan BadaBing! í síðustu viku. Ætli maður skáli samt ekki frekar í freyðivíni í kvöld. Nú drepst loksins þessi fukkans Phil. Það verður groddalegt, gaman og eitthvað svo rétt.

Sterkur leikur drykkjumanns í pattstöðu annars
Fimmtudagur, 13. desember 2007

Kunningi minn einn ákvað um daginn að fara í meðferð. Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég heyrði þetta var að hann hlyti að eiga helling af áfengi sem fallega gert væri að losa hann við.

Er ég þá alki eða bara góður vinur?

Dauður fiskur
Fimmtudagur, 13. desember 2007

Látinn er í Reykjavík gullfiskurinn Kjósandi. Eftir lifir í leikfélagi hans, Gunnar Smári, einn í glerkúlunni í eldhúsinu í Nóatúni. Kjósandi var geðprýðisfiskur, íhugull og þægilegur félagi sem var alveg jafn gleyminn og aðrir kjósendur og var ekkert að erfa við mann lélega umhirðu og fyllirísröfl.

Kjósandi var alltaf feitari og pattaralegri en Gunnar Smári þannig að maður hélt nú alltaf að hann færi síðar í hina hinstu för niður skólplagnirnar. En Kjósandi gafst sem sagt upp á undan eftir tæplega tveggja ára dvöl í kúlunni.

Mæer helst illa á gæludýrum. Fyrst yfirgaf læðan Megas samkvæmið eftir ofbeldis hússtjórnarinnar og hrökklaðist heim til mömmu sinnar og Bubba bróður síns í sveitina. Nú er svo dagar Kjósanda taldir þannig að nú er bara að bíða eftir að Smárinn taki baksundið og slútti þar með þessu tilgangslausa fiskeldi í eldhúsinu.

First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff