»  off record  »  Dauður fiskur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Dauður fiskur
Fimmtudagur, 13. desember 2007

Látinn er í Reykjavík gullfiskurinn Kjósandi. Eftir lifir í leikfélagi hans, Gunnar Smári, einn í glerkúlunni í eldhúsinu í Nóatúni. Kjósandi var geðprýðisfiskur, íhugull og þægilegur félagi sem var alveg jafn gleyminn og aðrir kjósendur og var ekkert að erfa við mann lélega umhirðu og fyllirísröfl.

Kjósandi var alltaf feitari og pattaralegri en Gunnar Smári þannig að maður hélt nú alltaf að hann færi síðar í hina hinstu för niður skólplagnirnar. En Kjósandi gafst sem sagt upp á undan eftir tæplega tveggja ára dvöl í kúlunni.

Mæer helst illa á gæludýrum. Fyrst yfirgaf læðan Megas samkvæmið eftir ofbeldis hússtjórnarinnar og hrökklaðist heim til mömmu sinnar og Bubba bróður síns í sveitina. Nú er svo dagar Kjósanda taldir þannig að nú er bara að bíða eftir að Smárinn taki baksundið og slútti þar með þessu tilgangslausa fiskeldi í eldhúsinu.


| 20:01 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff