»  off record  »  janúar 2008
off record
janúar 2008

a long time ago...
Áramótaávarp
Þriðjudagur, 01. janúar 2008

Því miður gerist það ekki oft að ég nái ekki að drekka mig rænulausan um áramót. Það klikkaði samt í gær og fer óendanlega í taugarnar á mér. Það hefur aldrei boðað gott að ganga með fulla meðvitund inn í nýtt ár. Af því ég varð ekki nógu fullur heyrði ég og man ávörp landsfeðranna. Allt á hefðbundnu róli þar og no surprises. Mér finnst samt miklu meira varið í áramótaávarp Dopplers með stóra tittlinginn sem ég las í veikindunum milli hátíða. Frábær bók og ég hefði varla getað haldið betra ávarp sjálfur þótt mér hefði tekist að drekka mig til óbóta eins og Doppler gerði:

Ég er bæði kóngur og forsætisráðherra og ég ávarpa þjóðina. Kæru landar, kalla ég, ég kann ekki við ykkur. Þið verðið að taka ykkur á. Þið verðið að líta upp og hætta að vera svona andskoti góðir í öllu. Og þið hægrafólkið verðið að losa ykkur við helvítis hundana ykkar og þurrka sjálfumglaða glottið af ykkur, og verðið að fara að skipta. Og hjóla. Við verðum að hjóla og skipta eins og djöfullinn sjálfur ef við eigum að geta haldið öllu gangandi. Og hver á þytinn í vindinum í trjánum og blómin á jörðinni? Og megi Stubbarnir brenna í helvíti, og andskotinn, ég fer út af sporinu, ég er of fullur til að halda þræði í áramótaávarpi, en Lövenskiold, kalla ég, þú verður að skila skóginum til fólksins, því þú átt hann eiginlega ekki, enginn ætti að geta átt skóg, og pabbi, held ég áfram, þú ert farinn og ég þekkti þig ekki og ég er einmana, ég hef alltaf verið einmana og ég fæli alla frá mér af því að ég er fífl einsog allir aðrir, og enginn þekkir mig og ég óttast að enginn eigi eftir að þekkja mig meðan ég lifi, og ég gefst upp og kalla að lokum bara andskotinn andskotinn andskotinn þangað til ég missi röddina.

Sparnaðarboðskapur vors góða forseta er góður og gildur en ég held að Doppler sé kominn á farsælla spor. Vöruskipti eru framtíðin. Elgskjöt í skiptum fyrir vodka til dæmis.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff